SÖNGUR 104
Heilagur andi er gjöf Guðs
-
1. Jehóva, faðir, mild er þín miskunn,
mannshjartanu ávallt meiri ert.
Léttu’ okkar byrði, linaðu angist,
líknandi andi þinn fær okkur snert.
-
2. Dýrð þína skortir sköpunin mannleg,
skammsýn oft villist af réttri leið.
Guð, ljáðu eyra grátbeiðni okkar,
gef okkur anda þinn um lífsins skeið.
-
3. Þegar ég þreytist þrýtur oft kjarkinn,
þá kraftur þinn kveikir von hjá mér.
Lyftu mér upp á arnarins vængjum,
anda þinn veittu sem styrkjandi er.
(Sjá einnig Sálm 51:13; Jóh. 14:26; Post. 9:31.)