Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

SÖNGUR 115

Þakklát fyrir þolinmæði Guðs

Þakklát fyrir þolinmæði Guðs

(2. Pétursbréf 3:15)

  1. 1. Jehóva Guð, þú alvaldið átt,

    opnaðir leið að fullri sátt.

    Á jörðu ríkir illskan enn,

    angrar hún alla góða menn.

    Guð minn þó aldrei seinn er á sér,

    senn þolinmæðin á enda er.

    (VIÐLAG)

    Við lítum veginn vongóð nú,

    vegsömum nafn þitt þakklát í trú.

  2. 2. Í þínum augum árþúsund er

    aðeins sem dagur liðinn hver.

    Dómsdegi aftrar ekki neinn,

    eigi hann dregst né verður seinn.

    Þó að þér sárni syndir hvers manns,

    samt gleður þig mest iðrunin hans.

    (VIÐLAG)

    Við lítum veginn vongóð nú,

    vegsömum nafn þitt þakklát í trú.