Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

SÖNGUR 124

Sýnum tryggð

Sýnum tryggð

(Sálmur 18:26)

  1. 1. Tryggð við sýnum sönnum Guði,

    trygga sönnum okkar ást.

    Ef hans vígðir vottar erum

    kærleiksverkin látum sjást.

    Ráð hans aldrei bregðast okkur,

    hlýðum orðum skaparans.

    Hann er tryggur, treystum honum,

    aldrei týnum vegi hans.

  2. 2. Tryggð við bræður sanna sýnum,

    þolum saman raunastund.

    Treystum alltaf, góðvild glæðum,

    réttum gjafmild hjálparmund.

    Heiðrum alla bræður okkar,

    virðing er svo mikilvæg.

    Ávallt trygglynd, trúföst er hún,

    elskan traust og óhlutdræg.

  3. 3. Tryggð við sýnum, leiðsögn lútum,

    þeim sem leiða Drottins hjörð.

    Ráðum þeirra fús við fylgjum

    sem um fræðslu standa vörð.

    Guð þá blessun okkur býður,

    þungar byrðar léttir hann.

    Þegar trygglynd ávallt erum

    okkur Jehóva þá ann.