SÖNGUR 133
Tilbiðjum Jehóva á æskuárunum
-
1. Ung sem nú erum og þjónum þér sátt,
fúslega gefum þér tíma og mátt.
Jehóva, þú sýnir umhyggju’ og ást,
um alla daga mun blessun þín sjást.
-
2. Foreldra heiðrum sem um okkur sjá,
hreinskilin segjum þeim hug okkar frá.
Náð finnum mönnum og Jehóva hjá,
nálægð við Guð okkar finnum við þá.
-
3. Skaparann munum öll æskunnar ár,
hlýðni við hann sparar sorgir og tár.
Gerum við þetta þá Jehóva sér
gjafirnar okkar og glaður hann er.
(Sjá einnig Sálm 71:17; Harmlj. 3:27; Ef. 6:1-3.)