SÖNGUR 138
Gráar hærur eru heiðurskóróna
-
1. Meðal okkar aldraðir
eiga’ ei æskuþrótt.
Þeir samt sýna þolgæði,
þreyja dag og nótt.
Mátturinn fer minnkandi,
maka sumir misst.
Viltu, faðir, vernda þá,
vonin sé þeim viss.
(VIÐLAG)
Faðir, þú sem þekkir
það sem vel er gert.
Gleð þau, Guð, og segðu:
„Góður þjónn þú ert!“
-
2. Hærur eru heiðursdjásn
helgum vegi á.
Fögur þeirra fórnarlund
föður okkar hjá.
Eitt sinn voru aldraðir
ungir, minnumst þess.
Hver og einn af kærleika
kraftinn sýndi hress.
(VIÐLAG)
Faðir, þú sem þekkir
það sem vel er gert.
Gleð þau, Guð, og segðu:
„Góður þjónn þú ert!“
(Sjá einnig Sálm 71:9,18; Orðskv. 20:29; Matt. 25:21, 23; Lúk. 22:28; 1. Tím. 5:1.)