Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Upplýsingar fyrir mótsgesti

Upplýsingar fyrir mótsgesti

UMSJÓN Salarverðir eru mótsgestum til aðstoðar. Fylgdu leiðbeiningum þeirra jafnt utan húss sem innan svo sem varðandi bílastæði, sæti og annað.

SKÍRN Þeir sem ætla að láta skírast á mótinu ættu að fá sér sæti í fremstu sætaröð fyrir framan sviðið áður en skírnarræðan hefst fyrir hádegi á laugardag. Skírnþegar ættu að hafa með sér handklæði og viðeigandi sundföt.

FRJÁLS FRAMLÖG Talsverðum fjármunum hefur verið varið til þess að við getum haft hentugt húsnæði, sæti, hljóðkerfi, myndbúnað og annað sem gerir dvölina á mótsstaðnum ánægjulega og hjálpar okkur að styrkja sambandið við Jehóva. Frjáls framlög mótsgesta eru notuð til að standa undir þessum kostnaði og til að styðja alþjóðastarfið. Víða á mótsstaðnum má finna greinilega merkta bauka fyrir frjáls framlög. Öll framlög eru mikils metin og hið stjórnandi ráð þakkar fyrir rausnarlegan stuðning við starfsemi Guðsríkis.

SKYNDIHJÁLP Höfum í huga að aðeins ætti að leita til þessarar deildar í NEYÐARTILFELLUM.

TAPAÐ FUNDIÐ Fara ætti með alla óskilamuni í deildina sem merkt er ,Tapað og fundið‘. Ef þú týnir einhverju skaltu leita þangað og þú færð aðstoð við að finna það. Ef börn verða viðskila við foreldra sína ætti að fara með þau í þessa deild. Til að forðast allt óþarfa álag er fólk vinsamlegast beðið um að gæta barna sinna og hafa þau hjá sér.

SÆTI Sýndu öðrum tillitssemi. Mundu að aðeins má taka frá sæti fyrir nána ættingja, þá sem búa á sama heimili og þú, eru þér samferða til mótsstaðarins eða eru biblíunemendur þínir. Geymdu ekki dót í sætum sem eru ekki frátekin.

SJÁLFBOÐASTÖRF Hafðu samband við sjálfboða- og upplýsingadeildina ef þig langar til að taka þátt í sjálfboðastörfum á mótinu.

SÉRSTAKUR FUNDUR

SKÓLI FYRIR BOÐBERA GUÐSRÍKIS Brautryðjendum á aldrinum 23 til 65 ára sem langar til að færa út kvíarnar í þjónustunni er boðið að koma á fund eftir hádegi á sunnudag fyrir þá sem hafa áhuga á að sækja skólann. Nánari upplýsingar um stað og stund verða veittar á mótinu.

Skipulagt af stjórnandi ráði Votta Jehóva