Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

KAFLI 57

Hvað geturðu gert ef þú drýgir alvarlega synd?

Hvað geturðu gert ef þú drýgir alvarlega synd?

Þó að þú elskir Jehóva heitt og leggir þig fram um að gera ekkert sem særir hann verða þér stundum á mistök. En sumar syndir eru alvarlegri en aðrar. (1. Korintubréf 6:9, 10) Ef þér verður á að drýgja alvarlega synd skaltu muna að Jehóva er ekki hættur að elska þig. Hann er fús til að fyrirgefa þér og hjálpa þér.

1. Hvað þurfum við að gera til að Jehóva fyrirgefi okkur?

Þeim sem elska Jehóva þykir það mjög leitt þegar þeim verður ljóst að þeir hafa drýgt alvarlega synd. En þeir fá hughreystingu í þessu loforði Jehóva: „Þó að syndir ykkar séu skarlatsrauðar skulu þær verða hvítar sem snjór.“ (Jesaja 1:18) Ef við iðrumst einlæglega fyrirgefur Jehóva okkur að fullu. Hvað felur iðrun í sér? Við sjáum virkilega eftir mistökum okkar, hættum að gera það sem er rangt og sárbænum Jehóva að fyrirgefa okkur. Síðan leggjum við hart að okkur að breyta röngu hugarfari eða venjum sem urðu til þess að við syndguðum og reynum að lifa eftir siðferðisreglum Jehóva. – Lestu Jesaja 55:6, 7.

2. Hvernig notar Jehóva öldungana til að hjálpa okkur þegar við syndgum?

Jehóva segir okkur að ‚kalla til okkar öldunga safnaðarins‘ ef við drýgjum alvarlega synd. (Lestu Jakobsbréfið 5:14, 15.) Öldungarnir elska Jehóva og sauði hans. Þeir vita hvernig þeir eiga að hjálpa okkur að endurheimta gott samband við Jehóva. – Galatabréfið 6:1.

Hvernig hjálpa öldungarnir okkur ef við drýgjum alvarlega synd? Tveir eða þrír öldungar nota leiðbeiningar úr Biblíunni til að leiðrétta okkur. Þeir gefa okkur líka hagnýt ráð og hvatningu til að hjálpa okkur að falla ekki aftur í sama farið. Þeir gætu takmarkað þátttöku okkar á ákveðnum sviðum í söfnuðinum um tíma þar til við höfum styrkt samband okkar við Jehóva aftur. Ef einhver drýgir alvarlega synd og iðrast ekki víkja öldungarnir honum úr söfnuðinum svo að hann hafi ekki slæm áhrif á aðra.

KAFAÐU DÝPRA

Dýpkaðu skilning þinn og þakklæti fyrir það hvernig Jehóva hjálpar okkur ef okkur verður á að drýgja alvarlega synd.

3. Það er okkur til góðs að viðurkenna synd okkar

Við særum Jehóva þegar við syndgum. Þess vegna er rétt að við viðurkennum syndir okkar fyrir honum. Lesið Sálm 32:1–5 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

  • Hvers vegna er betra fyrir okkur að játa syndir okkar fyrir Jehóva heldur en að reyna að leyna þeim?

Þegar við leitum hjálpar öldunganna auk þess að viðurkenna syndir okkar fyrir Jehóva líður okkur betur. Spilið MYNDBANDIÐ og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

  • Hvernig hjálpuðu öldungar Canon að snúa aftur til Jehóva?

Við verðum að vera hreinskilin við öldungana. Þeir vilja hjálpa okkur. Lesið Jakobsbréfið 5:16 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

  • Hvers vegna er auðveldara fyrir öldungana að hjálpa okkur ef við erum hreinskilin við þá?

Viðurkenndu synd þína, vertu hreinskilinn við öldungana og þiggðu kærleiksríka hjálp Jehóva.

4. Að víkja syndara úr söfnuðinum er kærleiksrík ráðstöfun

Sá sem drýgir alvarlega synd og neitar að fylgja siðferðisreglum Jehóva getur ekki lengur tilheyrt söfnuðinum. Honum er vikið úr söfnuðinum og við umgöngumst hann ekki né tölum við hann. Lesið 1. Korintubréf 5:6, 11 og 2. Jóhannesarbréf 9–11 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

  • Súrdeig gerjar brauðdeig. Hvernig hefði það á svipaðan hátt áhrif á allan söfnuðinn að umgangast iðrunarlausan syndara?

Margir sem hefur verið vikið úr söfnuðinum hafa komið til baka vegna þess að aginn fékk þá til að ná áttum þó að hann hafi verið sársaukafullur. (Sálmur 141:5) Spilið MYNDBANDIÐ og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

  • Hvernig var það Sonju til góðs að vera vikið úr söfnuðinum?

Þeir sem er vikið úr söfnuðinum eiga alltaf möguleika á að snúa aftur.

  • Hvernig heiðrar fyrirkomulagið um að víkja syndara úr söfnuðinum nafn Jehóva?

  • Hvernig sýnir það að Jehóva er sanngjarn og kærleiksríkur?

5. Jehóva fyrirgefur okkur þegar við iðrumst

Jesús sagði dæmisögu sem hjálpar okkur að skilja hvernig Jehóva líður þegar einhver iðrast. Lesið Lúkas 15:1–7 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

  • Hvað segir þetta þér um Jehóva?

Lesið Esekíel 33:11 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

  • Hvað er mikilvægt að gera til að sýna að við iðrumst í einlægni?

Jehóva er eins og hirðir sem er innilega annt um sauði sína.

SUMIR SEGJA: „Ég er hræddur um að mér verði vikið úr söfnuðinum ef ég segi öldungunum frá því sem ég gerði.“

  • Hvernig myndir þú svara því?

SAMANTEKT

Jehóva fyrirgefur okkur þó að við drýgjum alvarlega synd ef við iðrumst í einlægni og erum ákveðin í að hætta að gera það sem er rangt.

Upprifjun

  • Hvers vegna er gott fyrir okkur að játa syndir okkar fyrir Jehóva?

  • Hvað þurfum við að gera til að Jehóva fyrirgefi okkur?

  • Hvers vegna ættum við að leita hjálpar öldunganna ef okkur verður á að drýgja alvarlega synd?

Markmið

KANNAÐU

Sjáðu hvernig maður nokkur kynntist miskunn Jehóva eins og henni er lýst í Jesaja 1:18.

Efastu aldrei um miskunn Jehóva (5:02)

Hvernig getur fyrirkomulagið um að víkja syndara úr söfnuðinum gagnast öllum sem málið snertir?

„Hvers vegna er kærleiksríkt að víkja brotlegum úr söfnuðinum?“ (Varðturninn 15. apríl 2015)

Sjáðu hvernig þú getur útskýrt fyrirkomulagið um að víkja syndara úr söfnuðinum fyrir einhverjum sem er ekki vottur Jehóva.

„Sniðganga vottar Jehóva fyrrverandi trúsystkini?“ (Vefgrein)

Lestu söguna „Ég varð að snúa aftur til Jehóva“ til að komast að því hvers vegna manni sem lenti á villigötum fannst Jehóva draga sig til sín aftur.

„Biblían breytir lífi fólks“ (Varðturninn 1. apríl 2012)