Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

KAFLI 59

Þú getur staðist ofsóknir

Þú getur staðist ofsóknir

Allir þjónar Jehóva þurfa fyrr eða síðar að þola andstöðu eða ofsóknir. Ætti það að hræða okkur?

1. Hvers vegna gerum við ráð fyrir að verða ofsótt?

Biblían segir skýrt: „Allir sem vilja lifa guðrækilegu lífi sem lærisveinar Krists Jesú verða ofsóttir.“ (2. Tímóteusarbréf 3:12) Jesús var ofsóttur vegna þess að hann tilheyrði ekki heimi Satans. Við tilheyrum ekki heldur þessum heimi svo að það ætti ekki að koma okkur á óvart þegar yfirvöld og trúarstofnanir þessa heims ofsækja okkur. – Jóhannes 15:18, 19.

2. Hvernig getum við búið okkur undir ofsóknir?

Við þurfum að styrkja traust okkar til Jehóva núna. Taktu þér tíma á hverjum degi til að tala við hann í bæn og að lesa orð hans. Sæktu samkomur reglulega. Það gefur þér þann styrk sem þú þarft til að takast hugrakkur á við allar prófraunir, jafnvel þó að þær komi frá fjölskyldunni. Páll postuli var oft ofsóttur. Hann skrifaði: „Jehóva hjálpar mér, ég óttast ekki neitt.“Hebreabréfið 13:6.

Við getum líka eflt kjarkinn með því að boða trúna reglulega. Þegar við boðum trúna lærum við að treysta Jehóva og það hjálpar okkur að sigrast á ótta við menn. (Orðskviðirnir 29:25) Ef þú byggir upp kjark til að boða trúna núna verðurðu vel undir það búinn að halda því áfram þó að stjórnvöld leggi hömlur á starfsemi okkar. – 1. Þessaloníkubréf 2:2.

3. Hvað gott hlýst af því að þola ofsóknir?

Við höfum að sjálfsögðu ekki ánægju af því að vera ofsótt. En ef við höldum trúföst út verður trú okkar sterkari. Við verðum nánari Jehóva vegna þess að við finnum hvernig hann hjálpar okkur þegar við erum alveg að bugast. (Lestu Jakobsbréfið 1:2–4.) Það særir Jehóva að sjá okkur þjást, en það gleður hann að sjá okkur halda út. Biblían segir: „Sé það vegna góðra verka sem þið þjáist með þolgæði þá er það Guði þóknanlegt.“ (1. Pétursbréf 2:20) Jehóva launar þeim sem halda trúfastir út með eilífu lífi í nýja heiminum. Þar mætir enginn andstöðu fyrir að þjóna Jehóva. – Matteus 24:13.

KAFAÐU DÝPRA

Skoðaðu hvernig er hægt að vera Jehóva trúr þrátt fyrir ofsóknir og hvers vegna það borgar sig.

4. Þú getur staðist andstöðu frá fjölskyldunni

Jesús var raunsær og sagði að fjölskylda okkar myndi ekki endilega styðja okkur ef við veldum að þjóna Jehóva. Lesið Matteus 10:34–36 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

  • Hvernig getur fjölskyldan brugðist við þegar maður ákveður að þjóna Jehóva?

Spilið MYNDBANDIÐ til að sjá dæmi um það og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

  • Hvað myndirðu gera ef vinur eða ættingi reyndi að fá þig til að hætta að þjóna Jehóva?

Lesið Sálm 27:10 og Markús 10:29, 30. Ræðið eftirfarandi spurningu eftir hvorn ritningarstað fyrir sig:

  • Hvernig getur þetta loforð hjálpað þér ef þú stendur frammi fyrir andstöðu frá fjölskyldu eða vinum?

5. Haltu áfram að þjóna Jehóva þrátt fyrir ofsóknir

Það kostar hugrekki að þjóna Jehóva þegar aðrir reyna að koma í veg fyrir að við gerum það. Spilið MYNDBANDIÐ og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

  • Hvað í myndbandinu finnst þér styrkjandi?

Lesið Postulasöguna 5:27–29 og Hebreabréfið 10:24, 25. Ræðið eftirfarandi spurningu eftir hvorn ritningarstað fyrir sig:

  • Hvers vegna er mjög mikilvægt að halda áfram að tilbiðja Jehóva þó að það séu settar hömlur á boðun okkar eða samkomur?

6. Jehóva hjálpar þér að halda út

Vottar Jehóva um allan heim, bæði ungir og gamlir, hafa haldið áfram að þjóna Jehóva trúfastir í ofsóknum. Spilið MYNDBANDIÐ til að sjá hvað hjálpaði nokkrum þeirra. Ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

  • Hvað hjálpaði vottunum í myndbandinu að halda út?

Lesið Rómverjabréfið 8:35, 37–39 og Filippíbréfið 4:13. Ræðið eftirfarandi spurningu eftir hvorn ritningarstað fyrir sig:

  • Hvernig fullvissar þessi ritningarstaður þig um að þú getir haldið út í hvaða prófraun sem er?

Lesið Matteus 5:10–12 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

  • Hvers vegna geturðu verið hamingjusamur þrátt fyrir ofsóknir?

Milljónir votta Jehóva hafa haldið áfram að þjóna honum trúfastlega þrátt fyrir andstöðu. Þú getur það líka!

SUMIR SEGJA: „Ég gæti aldrei staðist ofsóknir.“

  • Hvaða biblíuvers gætu fullvissað þá um að þeir geti staðist?

SAMANTEKT

Jehóva metur mikils að við reynum að þjóna honum þrátt fyrir ofsóknir. Við getum staðist þær með hjálp hans.

Upprifjun

  • Hvers vegna ættum við að búast við ofsóknum?

  • Hvernig geturðu búið þig undir ofsóknir núna?

  • Hvað getur styrkt traust þitt á að þú getir haldið áfram að þjóna Jehóva í hvaða prófraunum sem er?

Markmið

KANNAÐU

Horfðu á ungan bróður segja frá því hvernig Jehóva hjálpaði honum að halda út þegar hann var settur í fangelsi fyrir hlutleysi sitt.

Verum þolgóð þrátt fyrir ofsóknir (2:34)

Sjáðu hvað hjálpaði hjónum að þjóna Jehóva trúföst í mörg ár þrátt fyrir andstöðu.

Við þjónuðum Jehóva á tímum mikilla breytinga (7:14)

Lestu um hvernig þú getur sýnt hugrekki í ofsóknum.

„Búðu þig núna undir ofsóknir“ (Varðturninn júlí 2019)

Hvernig getum við tekist á við andstöðu frá fjölskyldunni?

„Sannleikurinn ‚færir ekki frið heldur veldur sundrungu‘“ (Varðturninn október 2017)