Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Er ég tilbúinn?

Er ég tilbúinn?

Er ég tilbúinn til að boða trúna með söfnuðinum?

Þú gætir verið tilbúinn að verða óskírður boðberi ef þú …

  • lest reglulega í Biblíunni, biður til Guðs og sækir samkomur.

  • kannt að meta það sem þú ert að læra, trúir því og langar að segja öðrum frá því.

  • elskar Jehóva og velur þér að nánum vinum þá sem gera það líka.

  • hefur sagt skilið við öll samtök sem tengjast stjórnmálum eða fölskum trúarbrögðum.

  • fylgir meginreglum Jehóva og langar til að verða vottur Jehóva.

Ef þér finnst þú vera tilbúinn að boða trúna með söfnuðinum getur biblíukennarinn þinn gert ráðstafanir til að þú getir rætt um það við öldungana.

Er ég tilbúinn að láta skírast?

Þú gætir verið tilbúinn að láta skírast ef þú …

  • ert óskírður boðberi.

  • tekur eins mikinn þátt og þú getur í boðuninni í hverjum mánuði.

  • styður ‚trúa og skynsama þjóninn‘ og fylgir leiðsögn hans. – Matteus 24:45–47.

  • hefur vígt þig Jehóva í bæn og vilt þjóna honum að eilífu.

Ef þér finnst þú vera tilbúinn að láta skírast getur biblíukennarinn þinn gert ráðstafanir til að þú getir rætt um það við öldungana.