Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit


Hvernig geturðu haft sem mest gagn af þessari biblíufræðslu?

Hvernig geturðu haft sem mest gagn af þessari biblíufræðslu?

Byrjaðu á að skoða yfirlitið. Síðan skaltu spila MYNDBANDIÐ.

FYRSTI HLUTI

Lestu fyrsta hlutann til að undirbúa hverja námsstund. Feitletruðu spurningarnar (A) og biblíuversin (B) leggja áherslu á aðalatriðin. Taktu eftir að sum biblíuvers eru merkt „lestu“.

MIÐHLUTI

Textinn (C) undir Kafaðu dýpra kynnir það sem er til umræðu. Millifyrirsagnirnar (D) kynna aðalatriðin. Lestu biblíuversin, svaraðu spurningunum og horfðu á myndböndin með kennara.

Rammar með MYNDBÖNDUM leiða þig inn á margmiðlunarefni til viðbótar. Sum myndbönd sýna raunverulega atburði. Önnur eru leikin og segja ekki frá raunverulegum atburðum eða fólki en draga upp mynd af raunhæfum aðstæðum.

Skoðaðu myndirnar og myndatextana (E) og veltu fyrir þér hvernig þú myndir svara fullyrðingunum í Sumir segja (F).

SÍÐASTI HLUTI

Samantekt og Upprifjun (G) draga saman það sem fjallað er um í kaflanum. Skráðu dagsetninguna þegar þú hefur lokið við kaflann. Markmið (H) gefur þér eitthvað til að vinna að. Undir Kannaðu (I) er meira efni sem þig gæti langað til að lesa eða horfa á.

Hvernig finnurðu biblíuversin?

Biblían er safn 66 minni bóka. Hún skiptist í tvo hluta, Hebresk-arameísku ritningarnar (Gamla testamentið) og Grísku ritningarnar (Nýja testamentið).

Vísað er í biblíuvers með því að kynna biblíubókina (A), kaflann (B) og versið eða versin (C).

Jóhannes 17:3 vísar til dæmis í Jóhannesarguðspjall, kafla 17 og vers 3.