Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

EFTIRFYLGNI

KAFLI 9

Samkennd

Samkennd

Meginregla: „Gleðjist með þeim sem gleðjast. Grátið með þeim sem gráta.“ – Rómv. 12:15.

Hvernig fór Jesús að?

1. Horfðu á MYNDBANDIÐ eða lestu Markús 6:30–34. Hugleiddu síðan eftirfarandi spurningar:

  1.    Hvers vegna voru Jesús og postularnir að vonast til að geta verið einir?

  2.   Hvað knúði Jesú til að kenna mannfjöldanum?

Hvað lærum við af Jesú?

2. Samkennd er mikilvæg svo að fólk finni að okkur er umhugað um velferð þess en ekki aðeins um að koma boðskapnum á framfæri.

Líkjum eftir Jesú

3. Vertu góður áheyrandi. Leyfðu viðkomanda að tjá sig. Gríptu ekki fram í og vertu ekki fljótur að gera lítið út tilfinningum hans, áhyggjum eða andmælum. Með því að sýna honum óskipta athygli finnur hann að þér stendur ekki á sama um hvað honum finnst.

4. Hafðu hinn áhugasama ofarlega í huga. Með hliðsjón af samræðum ykkar geturðu spurt þig:

  1.    Hvers vegna þarf hann á sannleikanum að halda?

  2.   Hvernig getur biblíunám bætt líf hans nú og í framtíðinni?

5. Veldu umræðuefni sem mætir þörfum hans. Um leið og færi gefst skaltu sýna hvernig biblíunám getur svarað spurningum hans og nýst honum í lífi og starfi.