Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

VIÐAUKI A

Sannindi sem við njótum að kenna

Sannindi sem við njótum að kenna

Jesús sagði að einlægt fólk myndi bera kennsl á sannleikann þegar það heyrði hann. (Jóh. 10:4, 27) Þess vegna viljum við sýna einföld sannindi í Biblíunni þegar við fáum tækifæri til að tala við fólk. Reyndu að vekja athygli á ákveðnum biblíusannindum með því að spyrja: „Vissirðu að …?“ eða: „Hefurðu einhvern tíma heyrt að …?“ Síðan skaltu benda á viðeigandi biblíuvers sem útskýra þessi sannindi. Bara það eitt að segja frá einföldum biblíusannindum getur sáð frækorni í hjarta fólks, frækorni sem Guð getur látið vaxa! – 1. Kor. 3:6, 7.

 FRAMTÍÐIN

  1. 1. Atburðir líðandi stundar og útbreidd viðhorf gefa til kynna að breytingar séu í vændum. – Matt. 24:3, 7, 8; Lúk. 21:10, 11; 2. Tím. 3:1–5.

  2. 2. Jörðin mun aldrei farast. – Sálm. 104:5; Préd. 1:4.

  3. 3. Vistkerfi jarðar munu ná sér að fullu. – Jes. 35:1, 2; Opinb. 11:18.

  4. 4. Allir munu búa við fullkomna heilsu. – Jes. 33:24; 35:5, 6.

  5. 5. Þú getur lifað að eilífu á jörðinni. – Sálm. 37:29; Matt. 5:5.

 FJÖLSKYLDAN

  1. 6. Eiginmaður ætti að „elska eiginkonu sína eins og sjálfan sig“. – Ef. 5:33; Kól. 3:19.

  2. 7. Eiginkona ætti að bera djúpa virðingu fyrir manni sínum. – Ef. 5:33; Kól. 3:18.

  3. 8. Hjón ættu að vera hvort öðru trú. – Mal. 2:16; Matt. 19:4–6, 9; Hebr. 13:4.

  4. 9. Börnum sem virða foreldra sína og hlýða þeim farnast vel. – Orðskv. 1:8, 9; Ef. 6:1–3.

NASA, ESA og Hubble Heritage Team (STScI/AURA)-ESA/Hubble Collaboration. Leyfi samkvæmt CC BY 4.0. Source.

 GUÐ

  1. 10. Guð á sér nafn. – Sálm. 83:18; Jer. 10:10.

  2. 11. Guð hefur samskipti við okkur. – 2. Tím. 3:16, 17; 2. Pét. 1:20, 21.

  3. 12. Guð er sanngjarn og fordómalaus. – 5. Mós. 10:17; Post. 10:34, 35.

  4. 13. Guð vill hjálpa okkur. – Sálm. 46:1; 145:18, 19.

 BÆNIN

  1. 14. Guð vill að við biðjum til sín. – Sálm. 62:8; 65:2; 1. Pét. 5:7.

  2. 15. Biblían kennir okkur að biðja. – Matt. 6:7–13; Lúk. 11:1–4.

  3. 16. Við ættum að biðja oft. – Matt. 7:7, 8; 1. Þess. 5:17.

 JESÚS

  1. 17. Jesús var frábær kennari og ráð hans eru enn í gildi. – Matt. 6:14, 15, 34; 7:12.

  2. 18. Jesús sagði fyrir atburði sem eru að rætast nú á dögum. – Matt. 24:3, 7, 8, 14; Lúk. 21:10, 11.

  3. 19. Jesús er sonur Guðs. – Matt. 16:16; Jóh. 3:16; 1. Jóh. 4:15.

  4. 20. Jesús er ekki Guð almáttugur. – Jóh. 14:28; 1. Kor. 11:3.

Gerð eftir mynd frá NASA/Visible Earth

 RÍKI GUÐS

  1. 21. Ríki Guðs er raunveruleg stjórn á himnum. – Dan. 2:44; 7:13, 14; Matt. 6:9, 10; Opinb. 11:15.

  2. 22. Ríki Guðs mun leysa stjórnir manna af hólmi. – Sálm. 2:7–9; Dan. 2:44.

  3. 23. Ríki Guðs er eina lausnin á vandamálum mannkyns. – Sálm. 37:10, 11; 46:9; Jes. 65:21–23.

 ÞJÁNINGAR

  1. 24. Guð veldur ekki þjáningum okkar. – 5. Mós. 32:4; Jak. 1:13.

  2. 25. Heimurinn er á valdi Satans. – Lúk. 4:5, 6; 1. Jóh. 5:19.

  3. 26. Guð lætur sig varða um þjáningar þínar. – Sálm. 34:17–19; Jes. 41:10, 13.

  4. 27. Guð mun binda enda á þjáningar innan skamms. – Jes. 65:17; Opinb. 21:3, 4.

 DAUÐINN

  1. 28. Hinir dánu hafa enga meðvitund, þeir þjást ekki. – Préd. 9:5; Jóh. 11:11–14.

  2. 29. Hinir látnu geta hvorki hjálpað okkur né skaðað okkur. – Sálm. 146:4; Préd. 9:6, 10.

  3. 30. Látnir ástvinir verða reistir upp á ný. – Job. 14:13–15; Jóh. 5:28, 29; Post. 24:15.

  4. 31. „Dauðinn verður ekki til framar.“ – Opinb. 21:3, 4; Jes. 25:8.

 TRÚARBRÖGÐ

  1. 32. Guð hefur ekki velþóknun á öllum trúarbrögðum. – Jer. 7:11; Matt. 7:13, 14, 21–23.

  2. 33. Guð hefur andstyggð á hræsni. – Jes. 29:13; Míka 3:11; Mark. 7:6–8.

  3. 34. Ósvikinn kærleikur einkennir sanna trú. – Míka 4:3; Jóh. 13:34, 35.