Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Upplýsingar fyrir mótsgesti

Upplýsingar fyrir mótsgesti

UMSJÓN Þeir sem hafa umsjón eru mótsgestum til aðstoðar. Vinsamlegast fylgið leiðbeiningum þeirra varðandi bílastæði, sæti og fleira.

SKÍRN Sæti verða tekin frá í fremstu sætaröð fyrir framan sviðið fyrir þá sem ætla að láta skírast og eru þeir beðnir um að fá sér sæti þar áður en skírnarræðan hefst á laugardagsmorgni og hafa með sér handklæði og sundföt við hæfi.

FRJÁLS FRAMLÖG Talsverðum fjármunum hefur verið varið til þess að hafa hentug sæti, hljóðkerfi, myndbúnað og fleira sem gerir dvölina á mótinu ánægjulega og hjálpar okkur að styrkja sambandið við Jehóva. Frjáls framlög ykkar eru notuð til að standa undir þessum kostnaði og styðja alþjóðastarfið. Á mótsstaðnum má finna vel merkta bauka fyrir frjáls framlög. En við mælum með að gefa framlög á netinu ef mögulegt er með því að fara á donate.pr418.com. Öll framlög eru mikils metin og stjórnandi ráð þakkar rausnarlegan stuðning við starfsemi Guðsríkis.

SKYNDIHJÁLP Hafa ber í huga að þessi deild sinnir aðeins neyðartilfellum.

TAPAÐ OG FUNDIÐ Fara ætti með alla óskilamuni í deildina sem er merkt tapað og fundið. Ef þú týnir einhverju skaltu fara þangað. Ef börn verða viðskila við foreldra sína ætti að fara með þau í þessa deild. En til að forðast óþarfa álag eru foreldrar hvattir til að gæta barna sinna vel og hafa þau hjá sér.

SÆTI Sýnum öðrum tillitssemi. Tökum aðeins frá sæti fyrir fjölskyldu okkar og heimilisfólk sem ferðast með okkur og biblíunemendur okkar. Leggjum ekkert á sæti sem eru ekki frátekin.

SJÁLFBOÐASTARF Hafðu samband við sjálfboða- og upplýsingadeildina ef þig langar til að taka þátt í sjálfboðastarfi á mótinu.

Skipulagt af stjórnandi ráði Votta Jehóva

© 2024 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania