Hafður fyrir rangri sök
Fyrir unga lesendur
Hafður fyrir rangri sök
JÓSEF – 2. HLUTI
Leiðbeiningar: Finndu þér hljóðlátan stað áður en þú leysir þetta verkefni. Þegar þú lest ritningarstaðina skaltu ímynda þér að þú sért á staðnum. Sjáðu atburðina fyrir þér. Hlustaðu á raddirnar. Hugleiddu hvernig sögupersónunum var innanbrjósts. Leyfðu frásögunni að lifna við.
Aðalpersónur: Jósef, Pótífar og eiginkona hans.
Samantekt: Jósef er hnepptur í fangelsi fyrir rangar sakir en Jehóva er með honum.
1 SKOÐAÐU SÖGUSVIÐIÐ. – LESTU 1. MÓSEBÓK 39:7, 10-23.
Hvaða tilfinningar gefur raddblær konu Pótífars til kynna þegar hún ásakar Jósef ranglega?
․․․․․
Lýstu fangelsinu eins og þú ímyndar þér það.
․․․․․
Hvers konar meðferð þurfti Jósef að þola í fangelsinu til að byrja með? (Vísbending: Sjá Sálm 105:17, 18.)
․․․․․
2 KAFAÐU DÝPRA.
Hvaða röngu ályktanir hefði Jósef getað dregið þegar hann var í fangelsinu ef hann hefði verið veikur í trúnni? (Vísbending: Sjá Jobsbók 30:20, 21.)
․․․․․
Hvernig vitum við að Jósef ásakaði ekki Jehóva fyrir þjáningarnar? (Vísbending: Sjá 1. Mósebók 40:8; 41:15, 16.)
․․․․․
Hvaða eiginleikar heldurðu að hafi hjálpað Jósef að þola þessa óréttlátu fangavist? (Vísbending: Lestu og hugleiddu þessi vers: Míka 7:7; Lúkas 14:11; Jakobsbréfið 1:4.)
․․․․․
1. Mósebók 39:21-23; 41:38-43.)
Hvaða þjálfun fékk Jósef í fangelsinu og hvernig getur hún hafa gagnast honum síðar á ævinni? (Vísbending: Sjá․․․․․
3 NOTAÐU ÞAÐ SEM ÞÚ LÆRÐIR. SKRIFAÐU HJÁ ÞÉR HVAÐ ÞÚ HEFUR LÆRT UM . . .
Blessunina sem fylgir því að vera þolgóð.
․․․․․
Þjálfunina sem þú getur fengið þegar þú þarft að þola erfiðleika.
․․․․․
Stuðning Jehóva í prófraunum.
․․․․․
ANNAÐ SEM ÞÚ GÆTIR VELT FYRIR ÞÉR.
Hefurðu einhvern tíma lent í aðstæðum þar sem þú varst hræddur og einmana? Hvernig heldurðu að Jehóva hafi hjálpað þér meðan á því stóð? (Vísbending: Lestu og hugleiddu 1. Korintubréf 10:13.)
․․․․․
4 HVAÐ Í ÞESSARI FRÁSÖGU HAFÐI MEST ÁHRIF Á ÞIG OG HVERS VEGNA?
․․․․․
Hægt er að finna meira biblíutengt efni á www.watchtower.org og www.pr418.com.