Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

FORSÍÐUEFNI | HVAR GETUM VIÐ FENGIÐ HUGGUN?

Huggun á erfiðum tímum

Huggun á erfiðum tímum

Erfiðleikar eru af ýmsu tagi og umræðan í þessum greinum er engan veginn tæmandi. En skoðum nánar fjögur dæmi sem hafa þegar verið nefnd. Taktu eftir hvernig fólk með mjög ólík vandamál hefur fundið ósvikna huggun í orði Guðs.

ATVINNUMISSIR

„Mér lærðist að þiggja þá vinnu sem bauðst og við skárum niður öll ónauðsynleg útgjöld.“ – Jonathan.

„Við hjónin misstum vinnuna á sama tíma,“ segir Seth. * „Í tvö ár þurftum við að lifa á ölmusu frá fjölskyldunni og tilfallandi verkefnum. Priscilla, konan mín, varð þunglynd út af ástandinu og mér leið eins og ég væri einskis nýtur.

Hvernig tókst okkur að komast í gegnum þetta? Priscilla minnti sjálfa sig stöðugt á orð Jesú í Matteusi 6:34. Þar segir hann að við eigum ekki að hafa áhyggjur af morgundeginum því að morgundagurinn hafi sínar áhyggjur. Priscilla fékk styrk til að halda út með því að biðja innilega til Guðs. Sálmur 55:23 hughreysti mig. Ég varpaði áhyggjum mínum á Jehóva Guð eins og sálmaskáldið gerði og ég fann að hann hélt mér uppi. Þó að ég sé með vinnu núna lifum við einföldu lífi eins og Jesús hvetur til í Matteusi 6:20-22. Umfram allt höfum við eignast nánara samband við Guð og hvort við annað.“

„Þegar litla fjölskyldufyrirtækið okkar varð gjaldþrota hafði ég verulegar áhyggjur af framtíðinni,“ segir Jonathan. „Vegna efnahagshruns varð tuttugu ára vinna að engu og við hjónin byrjuðum að rífast út af peningum. Við gátum ekki einu sinni notað kreditkort því að við óttuðumst að kortinu yrði hafnað.

En orð Guðs og andi hans hjálpaði okkur að taka skynsamlegar ákvarðanir. Mér lærðist að þiggja þá vinnu sem bauðst og við skárum niður öll ónauðsynleg útgjöld. Trúsystkini okkar hjálpuðu okkur líka en við erum vottar Jehóva. Þau stöppuðu í okkur stálinu og réttu okkur hjálparhönd þegar ástandið var hvað verst.“

HJÓNABANDIÐ FER ÚT UM ÞÚFUR

„Ég var bæði sár og reið þegar maðurinn minn yfirgaf mig fyrirvaralaust og sorgin helltist yfir mig,“ segir Raquel. „En ég nálægði mig Guði og hann huggaði mig og hughreysti. Ég bað til hans á hverjum degi og friður Guðs róaði mig. Hann læknaði hjartasár mín.

Með hjálp Biblíunnar komst ég yfir reiðina og gremjuna. Ég tók til mín orð Páls postula í Rómverjabréfinu 12:21: ,Lát ekki hið illa sigra þig en sigra þú illt með góðu.‘

„Stundum þarf maður að sætta sig við að eitthvað sé búið ... Núna hef ég sett mér ný markmið.“ – Raquel.

Góður vinur hjálpaði mér að skilja að ég þyrfti að halda áfram að lifa lífinu. Hann sýndi mér Prédikarann 3:6 og sagði að stundum þarf maður að sætta sig við að eitthvað sé búið. Mér fannst erfitt að kyngja því en ég þurfti á þessu að halda. Núna hef ég sett mér ný markmið.“

„Maður þarf á stuðningi að halda þegar hjónabandið fer út um þúfur,“ segir Elizabeth. „Ég átti góða vinkonu sem studdi mig frá degi til dags. Hún grét með mér og huggaði mig og mér fannst ég aftur einhvers virði. Ég er alveg viss um að Jehóva notaði hana til að græða hjartasár mín.“

VEIKINDI EÐA ELLI

„Ég finn hvernig andi Guðs gefur mér styrk í gegnum bænina.“ – Luis.

Luis, sem minnst var á í fyrstu greininni í þessari greinaröð, er með alvarlegan hjartasjúkdóm og var tvisvar sinnum hætt kominn vegna hans. Núna þarf hann súrefnisgjöf í 16 klukkustundir á sólarhring. „Ég bið stöðugt til Jehóva,“ segir hann. „Og ég finn hvernig andi Guðs gefur mér styrk í gegnum bænina. Bænin gefur mér hugrekki til að þrauka vegna þess að ég treysti á Guð og veit að hann lætur sér annt um mig.“

„Mig langar að gera svo margt en get það bara ekki,“ segir Petra sem er á níræðisaldri. „Það er mjög erfitt að finna þróttinn minnka. Ég er alltaf uppgefin og neyðist til að taka inn lyf. Ég hugsa oft um hvernig Jesús bað föður sinn um að láta ákveðna erfiðleika fara fram hjá sér ef mögulegt væri. En Jehóva styrkti Jesú og hann styrkir mig líka. Bænin er mín daglega meðferð. Mér líður miklu betur þegar ég hef talað við Guð.“ – Matteus 26:39.

Julian er eins innanbrjósts en hann hefur barist við MS-sjúkdóminn í næstum þrjá áratugi. „Ég fór úr framkvæmdastjórastól í hjólastól,“ segir hann. „En líf mitt hefur tilgang því að ég nota það til að þjóna öðrum. Að gefa af sér getur linað þjáningar og Jehóva stendur við loforð sitt um að styrkja okkur á neyðartímum. Ég get vel tekið undir orð Páls postula: ,Allt megna ég fyrir hjálp hans sem mig styrkan gerir.‘“ – Filippíbréfið 4:13.

ÁSTVINAMISSIR

Antonio segir: „Til að byrja með gat ég ekki trúað því að pabbi hefði lent í umferðarslysi og dáið. Mér fannst það svo óréttlátt – hann var bara gangandi vegfarandi. En ég gat engu breytt um það. Hann var í dái í fimm daga áður en hann lést. Mér tókst einhvern veginn að halda aftur af tárunum fyrir framan mömmu en brotnaði niður þegar ég var einn. Ég spurði mig stöðugt: ,Hvers vegna?‘ ,Hvers vegna?‘

Ég bað Jehóva að hjálpa mér að hafa stjórn á tilfinningunum og gefa mér ró þessa skelfilegu daga. Smám saman fann ég fyrir innri friði. Ég minntist þess að ,tími og tilviljun‘ mætir okkur öllum. Ég er sannfærður um að ég fái að sjá föður minn aftur í upprisunni því að Guð lýgur aldrei.“ – Prédikarinn 9:11; Jóhannes 11:25; Títusarbréfið 1:2.

„Þegar flugvélin hrapaði kostaði það son okkar lífið en við eigum samt margar góðar minningar um tímann sem við áttum með honum.“ – Robert.

Robert, sem minnst var á í fyrstu greininni, hugsar á svipuðum nótum. Hann segir: „Við hjónin höfum fundið fyrir þeim hugarfriði sem talað er um í Filippíbréfinu 4:6, 7. Við fengum hann með hjálp bænarinnar. Þessi innri friður frá Jehóva hefur hjálpað okkur að tala við fréttamenn um upprisuvonina sem við eigum. Þegar flugvélin hrapaði kostaði það son okkar lífið en við eigum samt margar góðar minningar um tímann sem við áttum með honum. Við reynum að hafa hugann við þær.

Þegar trúsystkini okkar töluðu um að við hefðum skýrt frá trú okkar í sjónvarpinu af ró og stillingu sögðum við að það hafi án efa verið vegna þess hve margir báðu fyrir okkur. Ég er sannfærður um að Jehóva styrkti okkur í gegnum öll huggunarorð þeirra.“

Eins og dæmin hér á undan sýna getur Guð huggað og hughreyst fólk í alls konar erfiðleikum. En hvað með þig? Þú getur fengið huggun og hughreystingu á erfiðum tímum sama hvaða erfiðleikum þú mætir. * Við hvetjum þig til að leita hjálpar hjá Jehóva, en hann er „Guð allrar huggunar“. – 2. Korintubréf 1:3.

^ gr. 5 Sumum nöfnum í þessari grein er breytt.

^ gr. 23 Ef þú óskar eftir aðstoð við að nálægja þig Guði og fá huggun hans og hughreystingu geturðu haft samband við votta Jehóva í þínu byggðarlagi eða skrifað til deildarskrifstofu Votta Jehóva.