Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

„Hinir hógværu fá landið til eignar“

„Hinir hógværu fá landið til eignar“

Flest höfum við séð réttlætinu rangsnúið og vonda menn kúga þá sem reyna að gera það sem rétt er. Á illska og óréttlæti einhvern tíma eftir að heyra sögunni til?

Sálmur 37 í Biblíunni svarar því, auk þess að gefa okkur leiðsögn. Taktu eftir hvernig sálmurinn svarar þessum mikilvægu spurningum.

  • Hvernig eigum við að bregðast við þegar aðrir þjaka okkur? – Vers 1 og 2.

  • Hvað verður um vonda menn? – Vers 10.

  • Hvaða framtíð bíður þeirra sem breyta rétt? – Vers 11 og 29.

  • Hvað ættum við að gera núna? – Vers 34.

Sálmur 37 sýnir skýrt að framtíðin er björt fyrir þá sem ,vona á Drottin og gefa gætur að vegi hans‘. Vottar Jehóva eru fúsir til að aðstoða þig við að kynna þér Biblíuna og fræðast um hvað þú getur gert til að slík framtíð bíði þín og ástvina þinna.