Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Veldu að styðja ríki Guðs núna

Veldu að styðja ríki Guðs núna

Ímyndaðu þér að fárviðri sé að bresta á þar sem þú býrð. Almannavarnir ríkisins senda út áríðandi viðvörun: „KOMIÐ YKKUR Í SKJÓL STRAX!“ Hvernig ættirðu að bregðast við? Að sjálfsögðu ættirðu að koma þér í öruggt skjól.

Á vissan hátt er hrikalegt „óveður“ í aðsigi hjá okkur öllum. Jesús kallaði það ,mikla þrengingu‘. (Matteus 24:21) Þó að við getum ekki komist undan þessari þrengingu getum við gert eitthvað okkur til verndar. Hvað getum við gert?

Í fjallræðunni gaf Jesús Kristur eftirfarandi leiðbeiningar: „Einbeitið ykkur því fyrst og fremst að ríki Guðs og réttlæti.“ (Matteus 6:33) Hvernig gerum við það?

Einbeittu þér fyrst og fremst að ríki Guðs. Þetta merkir að við ættum að líta á ríki Guðs sem mikilvægara en nokkuð annað. (Matteus 6:25, 32, 33) Hvers vegna ættum við að líta þannig á það? Vegna þess að menn geta hreinlega ekki leyst vandamál mannkynsins. Aðeins ríki Guðs ræður við það erfiða verkefni.

Einbeittu þér að réttlæti Guðs. Við ættum að gera okkar besta til að fara eftir réttlátum lögum Guðs og meginreglum hans. Hvers vegna? Vegna þess að það fer illa ef við ákveðum sjálf hvað sé rétt og hvað sé rangt. (Orðskviðirnir 16:25) En ef við lifum eftir meginreglum Guðs höfum við velþóknun hans og það er okkur líka til góðs. – Jesaja 48:17, 18.

Haltu áfram að einbeita þér fyrst og fremst að ríki Guðs og réttlæti. Jesús varaði við að sumir færu kannski út af sporinu og myndu halda að þeir gætu fundið öryggi með því að afla sér eins mikilla peninga og þeir gætu. Aðrir gætu orðið svo uppteknir af áhyggjum lífsins að þeir hefðu engan tíma til að einbeita sér að ríki Guðs. – Matteus 6:19–21, 25–32.

En Jesús lofaði að þeir sem myndu styðja ríki Guðs hefðu það sem þeir þyrftu núna og myndu njóta eilífrar blessunar í framtíðinni. – Matteus 6:33.

Þó að lærisveinar Jesú á fyrstu öld einbeittu sér fyrst og fremst að ríki Guðs og réttlæti sáu þeir ekki þjáningar og kvöl taka enda á sinni ævi. En þeir nutu verndar. Hvernig?

Þeir fóru eftir réttlátum siðferðisreglum Guðs og það verndaði þá fyrir erfiðleikunum sem fylgdu því að hunsa þær. Sterk trú þeirra á að ríki Guðs kæmi hjálpaði þeim jafnvel í gegnum í erfiðustu raunir. Og Guð gaf þeim ,kraftinn sem er ofar mannlegum mætti‘ til að þeir gætu haldið út. – 2. Korintubréf 4:7–9.

ÆTLAR ÞÚ AÐ EINBEITA ÞÉR FYRST OG FREMST AÐ RÍKI GUÐS?

Kristnir menn á fyrstu öld hlýddu boði Jesú um að einbeita sér fyrst og fremst að ríki Guðs. Þeir boðuðu fagnaðarboðskapinn um ríkið alls staðar í sínum heimshluta. (Kólossubréfið 1:23) Eru einhverjir sem gera það nú á dögum?

Já. Vottar Jehóva gera sér grein fyrir að það er stutt í að ríki Guðs bindi enda á núverandi heimskerfi og leggja sig þess vegna alla fram um að fara eftir því sem Jesús sagði: „Fagnaðarboðskapurinn um ríkið verður boðaður um alla jörðina til að allar þjóðir fái að heyra hann, og síðan kemur endirinn.“ – Matteus 24:14.

Hvernig ætlar þú að bregðast við fagnaðarboðskapnum um ríki Guðs? Við hvetjum þig til að líkja eftir íbúum borgarinnar Beroju í Makedóníu á fyrstu öld. Þegar Páll postuli boðaði þeim fagnaðarboðskapinn um ríkið tóku þeir við boðskapnum „af mesta áhuga“. Þeir „rannsökuðu Ritningarnar“ til að sannreyna það sem þeir höfðu heyrt og breyttu í samræmi við það sem þeir lærðu. – Postulasagan 17:11, 12.

Þú getur gert það sama. Með því að einbeita þér fyrst og fremst að ríki Guðs og réttlæti finnurðu skjól og vernd núna og nýtur varanlegs friðar og öryggis í framtíðinni.