Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Reiddu þig á Jehóva þegar þú þarft að takast á við einelti

Reiddu þig á Jehóva þegar þú þarft að takast á við einelti

Einelti getur valdið okkur líkamlegum og tilfinningalegum sársauka. Það getur jafnvel haft áhrif á samband okkar við Jehóva ef það beinist gegn trú okkar og við látum það draga úr okkur kjarkinn. Hvernig geturðu varið þig gegn þeim sem leggja aðra í einelti?

Mörgum vottum Jehóva hefur gengið vel að takast á við einelti með því að reiða sig á Jehóva. (Sl 18:17) Tökum Ester sem dæmi. Hún sýndi djörfung og afhjúpaði áætlun illmennis sem hét Haman. (Est 7:1–6) En fyrst sýndi Ester að hún reiddi sig á Jehóva með því að fasta. (Est 4:14–16) Jehóva blessaði það sem Ester gerði og verndaði bæði hana og fólk sitt.

Ef þú ert barn eða unglingur og stendur frammi fyrir einelti skaltu biðja Jehóva um að hjálpa þér. Talaðu líka við einhvern fullorðinn, foreldra þína eða þroskaðan vin um vandamál þitt. Þú getur treyst því að Jehóva hjálpi þér alveg eins og hann hjálpaði Ester. Hvað fleira gætirðu gert til að takast á við einelti?

HORFÐU Á MYNDBANDIÐ UNGLINGSÁRIN – AÐ TAKAST Á VIÐ EINELTI OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:

  • Hvað getur ungt fólk lært af því sem Charlie og Ferin sögðu?

  • Hvað geta foreldrar lært af Charlie og Ferin um hvernig hægt er að hjálpa börnum að takast á við einelti?