Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Foreldrar, hjálpið börnunum ykkar að öðlast visku frá Guði

Foreldrar, hjálpið börnunum ykkar að öðlast visku frá Guði

Ein besta aðferðin sem foreldrar geta notað til að hjálpa börnunum sínum að öðlast visku frá Guði er að hjálpa þeim að hafa gagn af safnaðarsamkomum. Það sem börn og unglingar sjá og heyra á samkomum ásamt því að svara hjálpar þeim að læra um Jehóva og verða nánir vinir hans. (5Mó 31:12, 13) Ef þú ert foreldri, hvernig geturðu hjálpað barninu þínu að hafa sem mest gagn af samkomum?

  • Reyndu eftir fremsta megni að sækja samkomur í ríkissalnum. – Sl 22:22.

  • Gefðu þér tíma fyrir eða eftir samkomur til að eiga hvetjandi samskipti við aðra í ríkissalnum. – Heb 10:25.

  • Sjáðu til þess að allir í fjölskyldunni hafi eintak af ritunum sem er farið yfir á samkomunni, annað hvort rafrænt eða á prenti.

  • Hjálpaðu barninu þínu að undirbúa svar með eigin orðum. – Mt 21:15, 16.

  • Talaðu vel um samkomurnar og leiðbeiningarnar sem við fáum.

  • Hjálpaðu börnunum þínum að taka þátt í að þrífa ríkissalinn og tala við fullorðna í söfnuðinum.

Það er mikil vinna að hjálpa börnum að nálgast Jehóva og getur stundum verið yfirþyrmandi. En þú getur treyst á hjálp Jehóva. – Jes 40:29.

HORFÐU Á MYNDBANDIÐ FORELDRAR, TREYSTIÐ Á KRAFTINN SEM JEHÓVA GEFUR OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:

  • Hvaða áhrif var þreyta farin að hafa á Zack og Leu?

  • Hvers vegna ættu foreldrar að leita til Jehóva til að fá styrk?

  • Hvað gerðu Zack og Lea til að treysta á Jehóva svo að þeim gengi vel?