Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Prófaðu þetta

Prófaðu þetta

Finnst þér gaman að lesa ævisögur bræðra okkar og systra?

Hjón nokkur lesa ævisögu á hverjum morgni. Þau segja: „Það hefur veitt okkur uppörvun og gleði að lesa þessar frásögur. Þær minna okkur á að við getum líka verið trúföst undir öllum kringumstæðum.“ Systir ein tekur í svipaðan streng og segir: „Þessar frásögur hreyfa við manni og veita huggun og hlýju. Líf bræðra okkar og systra er tilgangsríkt. Sögur þeirra hvetja mig til að gera meira í boðuninni og hjálpa mér að hvetja börnin mín til að þjóna Jehóva í fullu starfi.“

Ævisögur geta hjálpað þér að setja þér góð markmið í þjónustu Jehóva, sigrast á veikleikum og halda út í erfiðum prófraunum með gleði og reisn. Hvar finnurðu þessar ævisögur?

  • Skoðaðu þær í greinaröðinni „Life Stories of Jehovah’s Witnesses“ á jw.org eða í JW Library® á ensku.

  • Leitaðu að „ævisögur“ í VEFBÓKASAFNI Varðturnsins eða í forritinu Watchtower Library.