Vertu þakklátur
Sækja:
Elsku pabbi og mamma,
ég teikna mynd á lítið blað.
Þið eruð allra best í heimi
og mig langar að segja það.
Þið vaknið snemma’ á morgnana
til að koma’ okkur af stað.
Þið gerið ótrúlega margt
og ég vil þakka fyrir það.
Þið kennið mér hvern dag
að elska Jehóva
og í orði’ og verki bendið mér á það.
Pabbi’ og mamma,
ég elska ykkur
og ég bara segja vil:
Ég þakka að þið eruð til.