Hvaða önnur bók
Baksíða
Hvaða önnur bók
• hefur haft eins mikil áhrif á sköpun mestu listaverka heimsins, bókmennta og tónverka og raun ber vitni, jafnframt því að hafa haft veruleg áhrif á löggjöf margra þjóða?
• hefur gengist undir síendurtekna afritun mannshandarinnar um þúsundir ára en samt borist okkur nær óbreytt frá texta frumritanna?
• hefur vakið slíka óeigingirni hjá mönnum að sumir hafa verið fúsir til að þola þrautir og hætta jafnvel lífinu til að þýða hana?
• hefur verið þýdd á fleiri en 2100 tungumál sem gerir hana aðgengilega meira en 90 af hundraði mannkynsins?
• nefnir vísindaleg sannindi sem uppgötvuðust ekki fyrr en mörgum öldum síðar?
• inniheldur sígildar frumreglur sem hjálpa fólki af hvaða kynþætti, þjóðerni eða þjóð sem er að bæta hlutskipti sitt í lífinu?
• inniheldur ótvíræðar spár sem rættust eins og sögulegar staðreyndir sanna?
Væri það ekki fyrirhafnarinnar virði að rannsaka slíka bók?