4. hluti
Dóra er döpur
því að hún þarf
að vera inni.
Hún bíður og vonar að
rigningunni linni.
En allt í einu
fer sólin að skína
og Dóra vill leika með
flugvélina sína.
Hún hleypur út glöð í fasi, heyrir fuglana syngja og finnur ilm af grasi.
Dóra hrópar af gleði: „Nei, sjáðu þetta, rigningin frá Guði lætur blómin spretta!“
VERKEFNI
Lestu fyrir barnið:
Láttu barnið benda á:
Glugga Fugl Dóru
Tré Blóm
Láttu barnið finna:
Maríubjöllu Flugvél
Kenndu barninu:
Af hverju bjó Jehóva til rigninguna?