Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

5

Boðskapur Biblíunnar

Boðskapur Biblíunnar

Jehóva Guð hefur réttinn til að stjórna. Aðferðir hans eru þær bestu. Það sem hann ætlar sér með jörðina og mannkynið nær fram að ganga.

Eftir 4026 f.Kr.

„Höggormurinn“ véfengir rétt Jehóva til að stjórna og dregur í efa að aðferðir hans séu réttar. Jehóva lofar að vekja upp „niðja“ sem mun að lokum tortíma höggorminum Satan. (1. Mósebók 3:1-5, 15) En Jehóva leyfir mönnunum að stýra málum sínum sjálfir um tíma undir áhrifavaldi höggormsins.

1943 f.Kr.

Jehóva segir Abraham að hinn fyrirheitni niðji verði einn af afkomendum hans. – 1. Mósebók 22:18, NW.

Eftir 1070 f.Kr.

Jehóva fullvissar Davíð konung og síðar meir Salómon, son hans, um að fyrirheitni niðjinn fæðist í ættlegg þeirra. – 2. Samúelsbók 7:12, 16; 1. Konungabók 9:3-5; Jesaja 9:5, 6.

29 e.Kr.

Jehóva lýsir yfir að Jesús sé fyrirheitni ,niðjinn‘ sem erfi hásæti Davíðs. – Galatabréfið 3:16; Lúkas 1:31-33; 3:21, 22.

33 e.Kr.

Höggormurinn Satan veitir fyrirheitna ,niðjanum‘ tímabundna áverka með því að fá Jesú líflátinn. Jehóva reisir Jesú upp til lífs á himnum og tekur við andvirði fullkomins lífs hans. Þannig gerir Jehóva afkomendum Adams kleift að fá syndir sínar fyrirgefnar og hljóta eilíft líf. – 1. Mósebók 3:15; Postulasagan 2:32-36; 1. Korintubréf 15:21, 22.

Um 1914 e.Kr.

Jesús kastar höggorminum Satan niður til jarðar. Hann fær að leika lausum hala þar um stuttan tíma. – Opinberunarbókin 12:7-9, 12.

Framtíðin

Jesús hefur Satan í haldi í 1000 ár og eyðir honum síðan. Þar með mer hann höfuð hans í táknrænum skilningi. Upphafleg fyrirætlun Guðs með jörðina og mannkynið nær fram að ganga, nafn hans er hreinsað af áburði og það sannast að stjórnaraðferðir hans eru réttar. – Opinberunarbókin 20:1-3, 10; 21:3, 4.