Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Ákvörðun þín að þjóna Guði

Ákvörðun þín að þjóna Guði

16. kafli

Ákvörðun þín að þjóna Guði

Hvað verður þú að gera til að verða vinur Guðs? (1, 2)

Hvernig vígir þú þig Guði? (1)

Hvenær ættir þú að skírast? (2)

Hvernig getur þú fengið styrk til að vera Guði alltaf trúr? (3)

1. Til að verða vinur Guðs verður þú að öðlast góða þekkingu á sannindum Biblíunnar (1. Tímóteusarbréf 2:3, 4), leggja trú á það sem þú hefur lært (Hebreabréfið 11:6), iðrast synda þinna (Postulasagan 17:30, 31) og snúa þér. (Postulasagan 3:19) Síðan ætti kærleikur þinn til Guðs að knýja þig til að vígja þig honum. Það merkir að í einkabæn til Guðs segir þú honum að þú gefist honum til að gera vilja hans. — Matteus 16:24; 22:37.

2. Eftir að þú hefur vígt þig Guði ættir þú að láta skírast. (Matteus 28:19, 20) Skírn gerir öllum kunnugt að þú hafir vígt þig Jehóva. Skírnin er þess vegna aðeins fyrir þá sem eru nógu gamlir til að ákveða að þjóna Guði. Þegar einhver er skírður ætti að dýfa öllum líkama hans niður í vatn eitt augnablik. * — Markús 1:9, 10; Postulasagan 8:36.

3. Þegar þú hefur vígt þig Jehóva væntir hann þess að þú standir við heit þitt. (Sálmur 50:14; Prédikarinn 5:4, 5) Djöfullinn reynir að stöðva þig í að þjóna Jehóva. (1. Pétursbréf 5:8) En notaðu bænina til að nálgast Guð. (Filippíbréfið 4:6, 7) Lestu í orði hans á hverjum degi. (Sálmur 1:1-3) Hafðu náið samband við söfnuðinn. (Hebreabréfið 13:17) Með því að gera allt þetta færð þú styrk til að vera Guði alltaf trúfastur. Á þann hátt getur þú um alla eilífð gert það sem Guð krefst af þér.

[Neðanmáls]

^ gr. 2 Til undirbúnings skírninni er mælt með að numin sé bókin Þekking sem leiðir til eilífs lífs, eða svipuð bók útgefin af Watch Tower Bible and Tract Society.