Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Áfram með hugrekki

Áfram með hugrekki

Söngur 56

Áfram með hugrekki

(1. Tímóteusarbréf 1:12)

1. Sá sem er trúr og tryggur í öllu

traustur og óhræddur er.

Djarflega segir frá sannleika Drottins,

sýnir að ríkið er hér.

(Viðlag)

2. Kraft veitir trúin, knýr okkur áfram,

kærleikur eykur þá trú.

Í nafni Drottins við dirfskuna öðlumst,

dugleysi horfið er nú.

(Viðlag)

3. Jehóva Guð er sterkur í stríði,

styrkir sinn trúfasta her.

Í Harmagedón hann eyðir heim Satans

algjör þá sigur Guðs er.

(VIÐLAG)

Göngum því fram, fagnandi nú,

frelsi í boðskapnum er.

Jehóva þjónum í þrautunum hjálpar

þeim sem með sannleika fer.