Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Þúsundir bræðra

Þúsundir bræðra

Söngur 127

Þúsundir bræðra

(Opinberunarbókin 7:9)

1. Þúsundir, þúsundir bræðra

þjóna nú mér við hlið.

Sérhver er sannur vottur,

sýna þeir tryggð og frið.

Þúsundir þeir nú eru,

þetta er múgur sá

sem meðal þjóða syngja mun,

í samhljóm lofsöng tjá.

2. Þúsundir, þúsundir bræðra

þjóna í dýrðargnótt.

Dyggir í Drottins húsi

dvelja þeir dag og nótt.

Þúsundir sem þar segja

sælir frá því í trú:

„Jehóva Guð og Guðslambið,

þeir gefa frelsun nú.“

3. Þúsundir, þúsundir bræðra

þjóna nú fjær og nær,

eilífan boðskap bera,

blessun því margur fær.

Er þeir svo halda áfram

ofsóknir stríða við,

Kristur þeim veitir græna grund

og gefur hvíld og frið.