Það er óhugsandi að Guð fari með lygi
Söngur 149
Það er óhugsandi að Guð fari með lygi
1. Guð launaði Abraham loforði með,
hans lofsverða trúfesti heiti því réð.
Með augunum trúar hann efndir Guðs sá
því aldrei Guð lýgur, það treysti hann á.
2. Guð sýndi hve orð hans er óhagganlegt
og Abrahams blessun með eiði varð þekkt.
Nú vonina höfum, Guð vegsömum hér
og vitum að aldrei með lygi Guð fer.
3. En akkeri trúar er öryggi best,
með eiði og loforði Guð hefur fest.
Og bráðlega lýður Guðs sigurinn sér
því sjálfur Guð aldrei með lygatal fer.
4. Guð sannleikans, Jehóva, svíkur ei neinn,
brátt sannast á jörðu að Drottinn er einn.
Með tvöfalda fullvissu, orð sitt og eið,
Guð aldrei mun víkja af sannleikans leið.