Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Þakklæti fyrir langlyndi Guðs

Þakklæti fyrir langlyndi Guðs

Söngur 81

Þakklæti fyrir langlyndi Guðs

(2. Pétursbréf 3:15)

1. Jehóva Guð, þú alvald átt,

öll sýna verk þín ofurmátt.

Um þetta vitni eilíft ber,

undur á himni’ og jörðu hér.

Þau eru augnayndi þá

allra sem vilja sannleik sjá,

enn meiri dýrð hvert auga sér

er þú með alheimssigur fer.

2. Þú gætir strax til lykta leitt

lygarans verk og honum eytt.

Til þess að frelsa trúa menn,

tortíming er ei komin enn.

Nú skulu vottar vitna hátt,

vegsama nafnið og þinn mátt.

Þolgæði sýnir þú um sinn,

þá verður alheimssigur þinn.

3. Langlyndi gjöf mjög gagnleg er,

gleðjandi von til manna fer

þegar við hjálpum þeim að fá

þekkingu og þinn guðdóm sjá.

Megi þeim verða gatan greið,

gef þeim að finna lífsins leið.

Svo ásamt okkur sýndu þeim

sigur þinn, Guð, um allan heim.