Þeir heyra ekki heiminum til
Söngur 24
Þeir heyra ekki heiminum til
1. Þitt hjarta gefðu Guði allt
og varast gengi heimsins valt.
Þú vísar háttum hans á bug
en speglar heldur Jesú hug.
2. Ef heimsins stefnu stöndum gegn,
þá blessast starfið trúum þegn.
Ef verkum holdsins höfnum skýrt,
við eilíft höndlum lífið dýrt.
3. Hver vinur Guðs, sem gerir gott,
frá heimi gömlum uppsker spott.
Já, ofsótt verðum við því hér
en Kristur vörn og skjöldur er.
4. Við skulum herða hugann nú,
því okkar herra bað í trú:
„Ó, nafns þíns vegna varðveit þá.“
Við stöðugt vernd hans treystum á.