Að nálgast Jehóva
Söngur 225
Að nálgast Jehóva
1. Við þráum hylli þína,
sú þóknun er svo kær.
Sem holl og hógvær börnin
þér höldum okkur nær.
Það er hin mesta auðlegð
að eiga þig að vin.
Þín miskunn hrein er huggun ein,
þig hyllum sem gafst skyn.
2. Þú góði helgi hirðir
er hugsar mannkyns til.
Og fyrir Krist þú kennir
að kunna’ á réttu skil.
Hún færir líka frelsi
og frið þín elska góð.
Við fögnum trú sem færir þú
og fylgjum réttri slóð.
3. En best þig kynnti Kristur
sem kraftinn fékk frá þér.
Um gæsku þína’ og góðvild
hann gleggsta vitnið er.
Og þig við þekkja viljum
og þjóna einn og hver.
Er vinsemd þín á veginn skín,
þinn vilja elska ber.