Bænin er gjöf Guðs
Söngur 188
Bænin er gjöf Guðs
1. Er við höldum orð Guðs þá
okkur mun hann eyra ljá.
Aðeins fyrir einkason
eigum bænheyrslunnar von.
2. Bæn til hæða heyrist vel,
hafi menn rétt hugarþel.
Endurspeglum alltaf hér
elsku þá sem Guði ber.
3. Er við byrjum bænamál,
ber að kanna okkar sál.
Orð frá vörum veljum ný,
vönduð, þroskuð, fersk og hlý.
4. Tíma þarf að taka frá,
takmarki því munum ná.
Bænin huggar, hressir við,
hún er gjöf sem veitir frið.