Berjumst fyrir trúnni
Söngur 98
Berjumst fyrir trúnni
1. Eins og Jesús áður spáði
illskan magnast hér á jörð.
Kærleiksþelið kólna tekur,
köld er trú og hjörtun hörð.
Fyrir því við fúsir berjumst
fyrir trúnni sem Guð þá,
fyrr í kristinn söfnuð sáði
sem orð Drottins trúði á.
2. Látum Satan aldrei eyða
okkar trú á spá Guðs nú
og með námi, bæn og boðun
bjargföst höldum sannri trú.
Ávallt skulum einörð berjast
óttalaust án efa þá,
ötul við hvert annað styrkjum,
enginn mun þá falla frá.
3. Boðið orð Guðs breytilega,
berjist fyrir sannri trú.
Þannig vitnið þið með djörfung
þar til kerfið endar nú.
Sérhver illska upprætt verður,
alheimsvald þá réttlætt er.
Frelsun Guð mun gefa okkur
gegnum skipulag sitt hér.