Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Blessun Jehóva auðgar

Blessun Jehóva auðgar

Söngur 9

Blessun Jehóva auðgar

(Orðskviðirnir 10:22)

1. Blessun Guðs, Jehóva, auðgar menn æ,

einingu stunda þeir þá.

Gleði það veitir ef gróðursett fræ

göfugu hjarta mun ná.

2. Hatur og ofsóknir alls staðar sjást,

ákveðin stöndumst þá hríð.

Vissa um mátt Guðs og miskunn mun fást

meðan við þreyjum það stríð.

3. Heilshugar verki Guðs ljáum svo lið,

lærum hans réttlætis mál.

Jehóva gefur af góðsemi frið,

gleðst yfir auðmjúkri sál.

4. Megum við kosti og kapp sýna nú,

krans sem ei fölnar fæst þá.

Auðgandi blessun Guðs býðst svo í trú,

bætir ei raunum þar á.