Dásamleg stórvirki Guðs
Söngur 84
Dásamleg stórvirki Guðs
1. Jehóva Guð, þú alvald átt,
hve undursamleg öll þín verk.
Sól, jörð og tungl þinn sýna mátt,
þér syngja lof, sú rödd er sterk.
2. Vegur þinn sannur, viskan traust,
þér vegsemd, dómsvald eilíft ber.
Fagnar þér sköpun fullri raust
og fólk þitt lofgjörð gefi þér.
3. Hver óttast ekki mun þig mjög
og mikla heilagt tignar nafn?
Sannorður ert og sönn þín lög.
Þar sést að enginn er þér jafn.
4. Réttláta dóma rómum hér,
þinn rétt og visku sýna skýrt.
Nú mæti allar þjóðir þér
og þýðist þig og nafnið dýrt.