Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

„Dögg“ Jehóva meðal margra þjóða

„Dögg“ Jehóva meðal margra þjóða

Söngur 17

„Dögg“ Jehóva meðal margra þjóða

(Sálmur 110:3)

1. Eins og glitrar dögg við dögun,

dýrleg brúður Krists við hlið.

Hún er einstök, honum vegsemd,

hefur öðlast Drottins frið.

2. Meðal jarðar mörgu þjóða,

merlar döggin Guði frá.

Mild hún hressir, marga huggar,

mönnum bendir frið Guðs á.

3. Veitum leifum ávallt aðstoð

er Guðs dagur færist nær.

Aðrir sauðir eins og döggin

eiga gleði sem er skær.

4. Flokkur þessi fúsleik sýnir,

frægð Jah Guðs hann boðar nú.

Þjónum vítt sem daggardropar,

dýrlegt ríkið kynnum trú.