Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Dag hvern til Jehóva bið

Dag hvern til Jehóva bið

Söngur 161

Dag hvern til Jehóva bið

(1. Þessaloníkubréf 5:17)

1. Bæna til Jehóva biðjum í trú.

Berum nafn Drottins og þökkum það bljúg.

Haft getum djörfung, við höfum hans náð,

himneskum föður við allt getum tjáð.

Dag hvern til Jehóva bið.

2. Jehóva biðjum um blessun hvern dag,

biðjum um miskunn og bræðralags hag.

Okkur hann hrifið úr freistingu fær,

fjarlægir ótta og vernd sína ljær.

Dag hvern til Jehóva bið.

3. Biðjum til Jehóva bágstödd í neyð,

byrðum af hjarta þá léttum um leið.

Vonum á Drottin ef þjáumst við þreytt,

þetta er blessun sem okkur er veitt.

Dag hvern til Jehóva bið.

4. Biðjum til Jehóva þolinmóð þá,

þakkir og lofgjörð í bænum skal tjá.

Einlæg við Jehóva orð tölum hrein,

augljós mun gæska hans bæta öll mein.

Dag hvern til Jehóva bið.