Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Fagnaðarárið, von mannkyns

Fagnaðarárið, von mannkyns

Söngur 7

Fagnaðarárið, von mannkyns

(3. Mósebók 25:10)

1. Öll sköpunin er skuggum hrjáð

og skelfd ei losnað fær.

Með hvíldardagsins helgu náð

Guð hjálp nú bráðum ljær.

2. Er Kristur boðar hvíldarár

sem kemur stjórn hans frá,

þá rætast fornar friðar spár

sem fögnuð mönnum fá.

3. Krists ríki ræður þúsund ár,

þar réttlæti Guðs býr.

Það fjarlægja mun fals og tár,

menn frelsar himinn nýr.

4. Um fagnaðarár fræðið menn,

þá friðarstjórnartíð

og sérhver beini sjónum enn

á sigurlaunin fríð.