Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Fagnið, þið þjóðir!

Fagnið, þið þjóðir!

Söngur 14

Fagnið, þið þjóðir!

(Rómverjabréf 15:10)

1. Ó, lýðir þakkið nú með þjóð Guðs,

hans þekk stjórn fer í hönd.

Nú stjórnarstöðu Kristur hefur,

hann styðji gjörvöll lönd!

Sjö tíðir þjóða eru þrotnar,

vald þeirra liðið er.

Ó, lýðir þakkið nú með þjóð Guðs,

hans þjónn með valdið fer.

2. Ó, lýðir þakkið nú með þjóð Guðs,

er þetta kerfi mun

í ólgu Harmagedón eyðast

og algert mun þess hrun.

Þótt hátt menn lofi nú sinn hjáguð

og hafni stjórn Guðs þeir,

Guðs friðarhöfðingja við hyllum,

stjórn hans vex meir og meir.

3. Ó, lýðir þakkið nú með þjóð Guðs

og þessu segið frá:

„Með gæðum Guðsríki mun stjórna

og góðar fréttir tjá.“

Því Kristur ríkja mun með krafti

og kærleiks huga brátt.

Ó, lýðir þakkið nú með þjóð Guðs

og þjónið Drottni sátt.