Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Fjársjóður sem aldrei bregst

Fjársjóður sem aldrei bregst

Söngur 147

Fjársjóður sem aldrei bregst

(Matteus 6:20)

1. Við þökkum nú Jehóva þekkingar ljós

sem þiggjendur borði hans frá.

Þann heiður að boða hans blessuðu stjórn

sem bráðum við fáum að sjá.

2. Þín viska og réttlæti, vald þitt og ást,

sterkt verkar á hjarta og hug.

Við fögnum að sonur þinn frelsarinn er,

á fjandmönnum vinnur hann bug.

3. Þín vinátta, faðir, hún vermir nú sál.

Hvað verður hér mætara þráð?

Ei verðskulduð góðvild né gæska þín er,

þær gjafir þú veitir af náð.

4. Svo margt höfum þegið, við þökkum það allt

sem þitt sannleiksorð höfum þekkst.

Þú færir þeim blessun sem feta þinn veg,

þinn fjársjóður hann aldrei bregst.