Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Göngum í grandvarleik

Göngum í grandvarleik

Söngur 160

Göngum í grandvarleik

(Sálmur 26:1)

1. Ó, Drottinn minn, Jehóva dæmdu mig,

þig ávallt dýrka vil og setja traust á þig.

Sál mína hreinsa, hjartað reyndu nú,

ég hylli þína fæ og líf mitt blessar þú.

(Viðlag)

2. Til lygara ég ekki leita vil

og aldrei leiðin mín illvirkja stefni til.

Sál mína þurrka eigi út með þeim

sem þiggja mútugjöf og elska vondan heim.

(Viðlag)

3. Við dáum öll þinn bústað, Drottinn, mjög,

um eilífð dýrkum þig, víðfrægjum öll þín lög.

Tilbiðjum þig hjá altarinu enn

svo ómi þakkargjörð sem heyra allir menn.

(VIÐLAG)

Ég ætla mér, staðráðinn er ég hér,

ákveðinn ætíð er, grandvar ég geng með þér.