Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Göngum í nafni Guðs okkar

Göngum í nafni Guðs okkar

Söngur 80

Göngum í nafni Guðs okkar

(Míka 4:5)

1. Þú, Jehóva, herra himnanna ert

og hylltur í kærleik ætíð þú sért.

Þú vísar lýð leiðir, veitir og náð

sem verkamenn þínir fáum holl ráð.

2. Guðs óvinir mynda illvígan her,

af ákafa dýrka falsguði hér.

En okkur er andstyggð af guðum þeim,

við óttumst nafn Guðs er skapaði heim.

3. Frá Betlehem kemur Kristur, Guðs son,

með kærleikans gjöfum færir hann von.

Hann endurreist hefur andlega hjörð,

um alvaldsins lofgjörð stendur hún vörð.

4. Við Jehóva dýrkum allir sem einn,

nú öllum hér lærist vilji hans hreinn.

Er vopnunum sleppum, veljum við frið

og vakandi gengur Guðs fríða lið.