Gerum veg okkar gæfuríkan
Söngur 40
Gerum veg okkar gæfuríkan
1. Forðum Jah Guð bauð Jósúa:
„Jafnan virtu mín ráð.
Dag hvern lestu þau lágri raust,
ljúf þá reynast mín náð.
Megi lögmálið lýsa þér,
leiða þig sérhvern dag.
Ef frá vörum ei víkur það,
vex þér gæfan í hag.
Ef frá vörum ei víkur það,
vex þér gæfan í hag.“
2. Þegar konungur krýndur var,
kvöð á sig þessa tók:
„Eftirrit sjálfur rita þér,
reglur Drottins í bók.
Svo að ofmetnist eigi þú,
aldrei vík henni frá.
Þá munt langlífi’ og lofstír þú,
lán og blessanir sjá.
Þá munt langlífi’ og lofstír þú,
lán og blessanir sjá.“
3. Orð Guðs bendir á beinan veg,
býður fram lífsins arf.
Ekki stefnum við stöðugt rétt,
stýra Guð okkur þarf.
Ef við heilræði höfum Guðs,
hlýðum á réttlát boð,
glöð við uppfyllum öll hans lög,
eigum vísa hans stoð.
Glöð við uppfyllum öll hans lög,
eigum vísa hans stoð.