Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Glæðum kærleikann

Glæðum kærleikann

Söngur 86

Glæðum kærleikann

(1. Korintubréf 13:8)

1. Að gjöfum Jehóva góður er,

þær gefur þjónunum sínum hér

þá helstu hjálp sem þurfa þeir

til þess að starfa meir og meir.

Því anda Guðs þeir elska nú

og ávöxt rækta hans í trú.

Þeir einbeita því alltaf sér

að efla kærleikshuga hér.

2. Í þjónustunni má þroska ná

og þolgæði okkar eflist þá.

Það glöð við skulum glæða mest

sem Guð á himni metur best.

En þekking ein er ekki nóg

í okkar kennslustarfi þó

af öllu hjarta verðum við

að veita blessun Guðs og frið.

3. Við sjáum aukning með elju hér

ef öflugt vináttubandið er.

Við líðum þrautir langlynd þá

og lúnir hjálp frá sterkum fá.

Í litlu jafnvel lærum nú

hve ljúf er ósérplægin trú.

Við þroskum kærleiksþelið mest

og þannig líkjumst Guði best.