Gleðirík lofgjörð til Jehóva
Söngur 75
Gleðirík lofgjörð til Jehóva
1. Með vörum tjáum vegsemd, trú,
virðing og lofgjörðir veitum.
Með allt sem okkur brýnt er nú,
aðeins til Jehóva leitum.
Með greiðugt hjarta’ og gleðibrag
glymja því söngvar að vonum.
Og þakkirnar sendum saman í dag
því sál okkar gleðst í honum.
2. Guð sannan kærleik sýndi þá,
soninn til hjálpræðis sendi.
Til hans því lyfta höndum má,
hjálpráðin sönnu hann kenndi.
En guðleg fylgd er gleði manns,
gjafa hans megum við njóta.
Því deyr ei né dofnar elskan til hans,
sú dyggðin má aldrei þrjóta.
3. Hans leiðsögn eflir dáð og dug,
dýrð Guðs og styrkinn við sjáum.
Og dýrkum Guð af heilum hug,
honum frá allt saman fáum.
Í skugga hans er skjól og vernd,
skjöldur hann reynist í nauðum.
Í hjartanu finnum hlýjustu kennd
svo höndum ei sitjum auðum.