Gleðjum hjarta Jehóva
Söngur 51
Gleðjum hjarta Jehóva
1. Við hétum Guð að þjóna þér,
starf þitt með visku eflum hér.
En þannig gerir þjónn hver sitt
til þess að gleðja hjarta þitt.
2. Í hlýðni þér við leggjum lið
og lygi Satans hrekjum við.
Þín loforð helg og heilög boð
dag hvern þau eru okkar stoð.
3. Svo ‚trúr og hygginn þjónn‘ er þér,
um þína speki vitni ber.
Með fæðunni í tæka tíð
hann traustur styrkja mun þinn lýð.
4. Þinn anda veittu okkur nú
svo allir sýni hreina trú,
og beri ávöxt einn og hver
til yndis og til dýrðar þér.