Höldum okkur fast við Jehóva, Guð okkar
Söngur 131
Höldum okkur fast við Jehóva, Guð okkar
1. Við heimamenn Jehóva höldum okkur við þann
sem hollustu verðskuldar, fræðum aðra um hann.
Af falsguðum heimsins við fengið höfum nóg
en fylgjum þeim vegi, sem Drottinn okkur bjó,
með sannleik í hjarta er sanna veitir ró.
2. Guð hefur veitt loforð og hann mun við þau standa,
að hrinda burt kúgun og mannsins þunga vanda.
Brátt stöðvar hans ríki öll stríð og veitir frið,
nú stöðug því göngum öll Jehóva við hlið,
já, hann er Guð okkar og hans við viljum grið.
3. Við lærum orð sannleiks, það lesum dag og nætur
og lútum Guðs orði, því gefum stöðugt gætur.
Við verðum að læra um vilja Guðs sem mest
því viska og elska mun reynast okkur best,
með trúfesti traust okkar sé á Drottin fest.