Haldið fast við fagnaðarerindið!
Söngur 71
Haldið fast við fagnaðarerindið!
1. Við stefnu höldum staðfastir
er stundin færist nær.
Í bróðurhug ef vinnum verk,
þá vernd Guð okkur fær.
Hve sannleiksljósið ljómar skært
það líknsemd Drottins ber.
Við störfum ei til ónýtis,
það örugg gleði er.
2. Von eilífs lífs og upprisu,
hún yljar, hressir við,
við eigum algert trúartraust
sem eykur gleði’ og frið.
Við tengjum okkar tryggð við Guð
og trúum orði hans.
Ef áfram stöndum öruggir
við öðlumst lífsins krans.
3. Nú keppumst hörðum höndum við
að höndla lífið þá
í félagsskap sem færir styrk
við framför munum sjá.
Og góðar fréttir færa von
um frið í paradís.
Því æðstum Guði eignum lof,
hans einkasyni prís.