Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Haltu fast í sæluvonina

Haltu fast í sæluvonina

Söngur 119

Haltu fast í sæluvonina

(Títusarbréfið 2:13)

1. Menn hafa þreifað í myrkrinu um aldir,

mest eftir vindi þó reynst hefur sú leit.

Allskonar þættir að vonsku’ eru valdir,

vantrú og syndin á dauða veit.

(Viðlag)

2. Enn þá á jörðinni öll Guðs sköpun stynur

en brátt mun vonskan til lykta verða leidd.

Jehóva reynast mun raungóður vinur,

réttlætisfréttin er nú útbreidd.

(Viðlag)

3. Ástæðu Jehóva okkur hefur gefið,

útskýrir hvers vegna grimmdin varir enn.

Kristur mun nú innan skamms stíga skrefið,

skaparann lofa þá trúir menn.

(VIÐLAG)

Gleðjist því hver, ríki Guðs stofnsett er

og guðssonur frelsar frá óttanum hér.

Loks mönnum hjá endar harmur og vá

svo höldum öll fast okkar sæluvon þá.