Hamingjusamt fólk Jehóva
Söngur 57
Hamingjusamt fólk Jehóva
1. Þeir sem finna boðskapinn fögnuð mikinn fá,
þeir frelsi sannleiks þrá og hamingjuna sjá.
Orð Jehóva þeim lýsir og leiðir rétta slóð,
leiðrétting frá Guði er örugg og góð.
(Viðlag)
2. Satan nú í andstöðu iðkar harða hríð,
við eflum andlegt stríð, Guðs lofsöng ár og síð.
En Jehóva skóp auðmjúkum afdrep afar hátt,
öllum veitir vernd sem nú treysta’ á hans mátt.
(Viðlag)
3. Látum ekki hugfallast hverfi aðrir frá,
sem hafna sannleiks þrá, við árvök biðjum þá.
En vandlát okkar ráðvendni varðveitum með dyggð,
velþóknun Guðs höfum og þjónum í tryggð.
(VIÐLAG)
Náð þína, ó, Guð, þú auðsýnir hér
öllum sem játa nafnið þitt hvar sem er.
Vegna andans orð þitt í sannleika sjá,
sýna í verki trú og hlýðni þá.